Aðildarumsókn

Árgjald fyrir starfsárið 2022 er 10.000 kr. og greiðist við samþykkt umsóknar. Við samþykkt umsóknar er krafa stofnuð í heimabanka eða umsækjandi getur millifært á reikning félagsins sem er 0111-26-501108 og kennitalan er 641176-0289.

Innifalið í félagsgjaldi er sumarveiði í vötnunum að Fjallabaki og aðgangur að öllum hnýtingar-, fræðslu- og kynningarkvöldum Ármanna yfir vetrarmánuðina. Jafnframt býðst félagsmönnum afsláttur af veiðileyfum í Hlíðarvatni í Selvogi í forsölu og á veiðitímanum, sem og ýmis afsláttarkjör í veiði- og útivistarverslunum gegn framvísun félagsskírteinis.

Ef þörf er á nánari upplýsingum þá er best að senda tölvupóst á armenn hjá armenn.is.

Börn undir 18 ára aldri og makar fullgildra félagsmanna geta gerst félagar og greiða þá hálft árgjald.

Nánari upplýsingar, ef við eiga:

(required)