Ferð á Arnarvatnsheiði (Norðanmegin) 28-31. júlí

Dagana 28-31. júli 2026 ætla Ármenn í veiðiferð á Arnarvatnsheiði nánar til tekið norðanmegin (Arnarvatn Stóra).

Ármenn hafa tekið frá norðursal, 9 manna skála, mögulega hægt að koma fleirum þar inn.
Verðið á skálanum er 45.000,- og deilist það á þá sem í skálanum gista.

Félagar borga svo einnig veiðileyfin í Arnarvatnsheiði, 10.500,- kr stangardagurinn.

Einhver möguleiki er á að tjalda í kringum skálann en það á eftir að staðfesta endanlega.

Ármenn sjá um kvöldmat(grill) amk eitt kvöld fyrir  þá sem koma með.

Skráning í ferð á Arnarvatnsheiði 28-31. júlí 2026: