Ármenn eru félagsskapur fluguveiðimanna sem berast lítt á og hugsa fyrst og fremst um að eiga gott sambýli við allt sem að veiðunum lýtur.
Ármenn eru hvattir til hófsemi í veiði, þeir skilja ekkert eftir nema sporin sín á veiðistað og sýna öðru fólki virðingu hvar í sveit sem það er sett.
Félagið var stofnað 28. febrúar 1973 og er ennþá eina fluguveiðifélag landsins. Félagsmenn skuldbinda sig til að veiða eingöngu með flugu á svæðum félagsins.
Félagsheimili Ármanna nefnist Árósar og er í Hverafold 1-3, 112 Reykjavík.
Kennitala félagsins er: 641176-0289 og bankareikningur til greiðslu félagsgjalda og veiðileyfa er: 0111-26-501108