Aðalfundur Ármanna 12. mars

Góðir Ármenn!

Boðað er til aðalfundar Ármanna miðvikudaginn 12. mars kl. 20:00. Fundurinn er haldinn í Árósum, félagsheimili Ármanna í Hverafold 1-3.

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Fundargerð síðasta fundar.
  3. Skýrsla formanns um starfsemi stjórnar og fastanefnda.
  4. Endurskoðaðir reikningar.
  5. Lagabreytingar.
  6. Ákvörðun árgjalds.
  7. Kosning formanns.
  8. Kosning annarra stjórnarmanna.
  9. Kosning skoðunarmanna reikninga.
  10. Kosning uppstillingarnefndar.
  11. Önnur mál.

Samkvæmt lögum þarf að senda inn framboð til stjórnar og tillögur að lagbreytingum fyrir 15. janúar.

Þessar tillögur hafa borist:

Stjórnarkjör

Stjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára í senn og mega sitja þrjú tímabil samfellt að hámarki (sex ár).
Að þessu sinni losna fjögur sæti í stjórn:

Brjánn Ingason (#836) og Guðmar Guðmundsson  (#949) voru kjörnir í stjórn fyrir tveimur árum og gefa kost á sér áfram. Jóhann Hannesson  (#905) og Sigurjón Þorvaldsson (#880) láta af störfum eftir sex ára öflugt starf. Borist hafa tvö framboð í þeirra stað: Baldur Már Pétursson (#964) og Ólafur Á Þorgeirsson (#1121).

Þessir fjórir eru því sjálfkjörnir í stjórn. Jóhanni og Sigurjóni er þakkað fórnfúst starf þágu félagsins og þeir Baldur Már og Ólafur boðnir velkomnir.

Hjörtur Oddsson (#822) dregur sig í hlé sem formaður, en gefur kost á sér í stjórn áfram í eitt ár. Sæmundur Valdimarsson (#997), sem kjörin var í stjórn í fyrra (2024) gefur kost á sér sem formaður í hans stað. Ekki hafa aðrir gefið kost á sér til formanns og er Sæmundur því sjálfkjörinn.

Lagabreytingar

Borist hefur tillaga að lagabreytingu.

Á aðalfundi árið 2023 var samþykkt viðbót við 10. greinNefndir, svohljóðandi:

„Einnig er starfrækt uppstillingarnefnd sem kosið er í á aðalfundi til eins árs. Nefndin tekur á móti framboðum til stjórnarsetu og sér til þess að a.m.k. ein stjórnaruppstilling liggi fyrir fyrir boðun aðalfundar. Aðalfundur Ármanna kjósi eða samþykki 3 félagsmenn til setu í uppstillingarnefnd fyrir næsta starfsár.“

Breytingartillagan snýst um að fella þessa viðbót niður þar sem hingað til hafa engir fengist til að starfa í uppstillingarnefnd.

Rétt til setu á aðalfundi, kosningarétt og kjörgengi hafa allir skuldlausir félagar.

Fjölmennum! Vöfflur í boði húsnefndar!

Stjórnin

Leave a Reply