Urriðaveiði á Þingvöllum – Fræðslukvöld Í Árósum 26. mars kl. 20:00

Veiðimaðurinn úlpuklæddi, sem hér hampar vænum urriða úr Þingvallavatni krókloppnum höndum, er Andrew James Horne (#691).

Á miðvikudaginn kemur, 26. mars, ætlar Andrew að fræða okkur um það hvernig maður kemst í tæri við þessa höfuðskepnu Þingvallavatns, sjálfan ísaldarurriðann, í þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Fundurinn verður í Árósum og hefst kl. 20.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Leave a Reply